COROS VERTIX 2 úr – brúnt

122.700 kr.

VERTIX 2 er nýtt annarrar kynslóðar úr frá COROS. Mjög margar nýjunar og framfarir frá fyrra VERTIX úri. Þar ber helst að nefna enn stærri rafhlöðu, bakgrunnskort, ECG tækni við hjartsláttarmælingu sem er mun nákvæmari en áður hefur sést í útivistarúrum, tengist öllum mögulegum gervihnöttum og því mun meira nákvæmni í tracki en áður hefur sést, 20% meiri hraða í notkun, litaskjá, stærri skjá með stærra og sýnalegra letri og hægt að hlaða in MP3 tónlistarskrám.

COROS er einn fremsti framleiðandi í heiminum í útivistarúrum. COROS stendur fyrir gæði, fjölbreytta valmöguleika, gott verð og framúrskarandi batterísendingu. VERTIX 2 úrin endast í:

  • 60 daga í venjulegri notkun 140 klst í GPS notkun með aukaforrit ekki í gangi
  • 90 klst með öll forrit nema tónlist opin
  • 35 klst með öll forrit opin og tónlist í gangi
  • 240 klst í sparnaðar GPS notkun

Þessi mikla rafhlöðuending er með því allra mesta sem þekkist í sambærilegum úrum

COROS eru þekktir fyrir það að vera með gott viðmót og þægilegan stýrihnapp á hlið úrsins sem einfaldar notkun úrsins. VERTIX 2 eru fullkomnusta úrin frá COROS.

Til á lager

SKU: WVTX-VERTIX2 Vöruflokkar: , Tags: , , ,