Stærð: 42 x 42 x 11,75 mm
Skjástærð og upplausn: 218 x 218 (64 litir)
Tegund skjás: LCD
Þyngd: 49 g
Umgjörð utan um skjá: Ryðfrítt stál
Efni í skjá: Sapphire gler
Umgjörð: Ál
Efni í ól: Sílíkon
Rafhlöðuending:
– 24 dagar í reglulegri notkun
– 25 klst. í GPS notkun
– 100 klst. í sparnaðar GPS notkun
Hleðslutími: Minna en 2 klst.
Vatnsvörn (dýpt): 100 m
Tengimöguleikar: USB / Bluetooth Smart / WiFi
Tenging við síma: Bluetooth
Búnaður: Hjartsláttarmælir, svefnmælir, hröðun (Accelerometer), snúður (3-Axis Gyroscope), áttaviti (3-Axis Compass), hæðarmælir o.fl.
Líkamsþjálfun: Hlaup, hlaupabretti, utanvegahlaup, hlaup á braut, ganga, þríþraut, hjólreiðar, þrekhjól, fjallaklifur, sund, sjósund, skíði, snjóbretti, gönguskíði, fjallaskíði, styrkur, líkamsrækt með GPS, líkamsrækt í sal, fjölsport
Litur: Svartur
Úrið sem lærir á þig
COROS hefur hannað snjallkerfi sem lærir inn á þína skreflengd. Þegar þú hleypur úti þá lærir úrið þinn hlaupatakt og getur þannig betur áætlað vegalengd sem hlaupin er á hlaupabretti eða þar sem GPS merki er lélegt eins og t.d. í undirgöngum.
Hlaup á braut
Hefðbundin hlaupabraut er 400 m. Flest GPS úr eiga erfitt með að mæla rétta vegalengd þegar hlaupið er á braut. Með hlaupabrautarstillingunni frá Coros er tryggt að æfing þín sé rétt skráð óháð því á hvaða braut þú hleypur. Engin þörf lengur á að laga vegalengdina til eftir á, úrið sér um að gera þetta rétt í fyrstu tilraun.
Háþróuð greining á æfingunni
COROS appið er háþróað, mjög einfalt frábært og í notkun. Coros appið gefur þér fullkomna grafíska greiningu á æfingunni, þar á meðal: VO2 max, mat á endurheimt, hraðaþröskuld (threshold pace), æfingaálag síðustu 7 daga, heilsustuðul og margt fleira. Að auki getur þú tengt appið þínu uppáhalds æfingakerfi eins og Strava eða TrainingPeaks og fengið allar æfingar sjálfkrafa þangað yfir.