HOKA skór Mafate 4 – herra

32.900 kr.

Frábærir HOKA skór – HOKA MAFATE 4 – er einn af okkar uppáhalds utanvegahlaupaskóm frá HOKA. Hann hentar allt frá stuttum og upp í mjög löng hlaup með frábærri mýkt og dempun. Helsta einkenni HOKA er mikil mýkt og dempun sem gerir HOKA að einum vinsælustu hlaupaskóm í heiminum í dag.

Miðsólinn er úr tvöföldum EVA sóla sem gefur mikla dempun.

Vibram® Megagrip sóli sem gefur einstakt grip með laserskornu mynstri.

Skórnir drena sig sem þýðir að ef þeir blotna að innan þá lekur vatnið niður örsmá göt í gegnum sólann.Þessir HOKA skór eru frekar nettir á fæti, situr mjög vel og styður vel við öklann.

Mafate er gígur á eyju í Indlandshafi.

ATH. HOKA er almennt lítill í stærð en þessi týpa er það ekki. Flestir taka hálfu til einu númeri stærra en þeir taka í hefðbundnum hversdagsskóm.

SKU: HK-1129930-TFST Vöruflokkar: , Tags: , , ,
Hlaupár