BROOKS skór – Cascadia 16 – dömu

17.500 kr.

UTANVEGASKÓR

Cascadia er vinsælasti og öflugasti utanvegaskórinn frá Brooks. Cascadia eru margverðlaunaðir og hafa reynst frábærlega í íslenskri náttúru. Þeir eru einstaklega stöðugir og veita góða höggdempun. Þetta er fimmtánda útgáfan með enn betra og meira grip ásamt því að þeir eru talsvert léttari en áður.

Einnig er búið að bæta við jafnvægisplötu í miðjum sóla svo þú finnur enn minna en áður fyrir ósléttu undirlagi. Í miðsólanum virkar dempunin þannig að orkan sem kemur í niðurstiginu færist til hliðanna og minnkar þannig álag á fætur og stoðkerfi líkamans.

Þó skórnir séu hannaðir í utanvegahlaup henta þeir frábærlega í göngur og raun jafn mikið teknir í göngur og hlaup. Einnig hægt að nota þá innanbæjar sérstaklega á veturna þegar þörf er á grófum sóla í snjó og hálku.

Yfirbyggingin er með góðri öndum og góð bólstrun í hælkappa sem heldur vel utan um ökla.

Þetta eru BROOKS skór sem við mælum með í utanvegahlaup.

 

SKU: 1203631B 647 Vöruflokkar: , , Tags: , , ,
brooks skór
Hlaupár