HOKA skór Mafate 3 – dömu
28.900 kr.
HOKA MAFATE 3 er einn af okkar uppáhalds utanvegahlaupaskóm frá HOKA. Hann hentar allt frá stuttum og upp í mjög löng hlaup með frábærri mýkt og dempun. Helsta einkenni HOKA er mikil mýkt og dempun sem gerir HOKA að einum vinsælustu hlaupaskóm í heiminum í dag.
Miðsólinn er úr tvöföldum EVA sóla sem gefur mikla dempun.
Vibram® Megagrip sóli sem gefur einstakt grip með laserskornu mynstri.
Skórnir drena sig sem þýðir að ef þeir blotna að innan þá lekur vatnið niður örsmá göt í gegnum sólann.
Skórinn er frekar nettur á fæti, situr mjög vel og styður vel við öklann.
Mafate er gígur á eyju í Indlandshafi.
ATH. HOKA er almennt lítill í stærð en þessi týpa er það ekki. Flestir taka sama númer í þessum skóm og þeir taka í hefðbundnum hversdagsskóm.
ATH. einstaka stærðir eru í aðeins öðruvísi lit. Mynd af þeim lit kemur upp ef stærðin er valin.