HOKA innanbæjarskór Mach 4 – dömu

18.000 kr.

MACH 4 er fisléttur innanbæjarskór frá HOKA. Hann er í FLY línunni hjá HOKA sem samanstendur af léttum hlaupaskóm enda er MACH ekki nema 192 g. Einstaklega nettur og þægilegur en samt mjög mjúkur og með mjög góða dempun. Þessi týpa/litur var hönnuð með gönguskíðakonunni Theresu Johaug.

Miðsólinn er PROFLY sóli en HOKA lýsir því eins og að vera á “sykurpúðum” að aftan og “gormum” framan. Hann er þvi mjúkur að aftan en gefur spyrnuna til að taka skrefið.

Helsta einkenni HOKA er mikil mýkt og dempun sem gerir HOKA að einum vinsælustu hlaupaskóm í heiminum í dag.

Ytri sólinn er EVA sóla sem gefur mikla dempun.

ATH. skórinn er lítill í stærð. Flestir taka einu númeri stærra, en þeir eru vanir, ef þeir vilja hafa þá þétta, en allt að tveimur númerum stærri ef þeir vilja hafa þá vel rúma.

ATH. Skórinn sjálfur er aðeins dekkri en á myndinni (drapplitaður) og sólann aðeins ljósari).

 

SKU: HK-1113529-BGCS-1 Vöruflokkar: , Tags: , ,