IOMerino Ullaraðhaldsbuxur – dömu

15.700 kr.

Við hreinlega elskum þessar ullaraðhaldsbuxur (Ullarcompresson) frá IOMerino. Hentugar í fjölbreytta útivist eins og hlaup og göngur. Hlýjar og góðar í blautri og kaldri útivist en tempra hitann vel þegar hlýrra er í veðri. Háar og þægilegar í mittið. Þær eru góðar einar og sér en í nístingskulda er gott að vera í öðrum yfir. Til þess að fá buxurnar enn mýkri er hægt að handþvo þær með hárnæringu en annars þola þær þvottavél á 30 gráðum með mildu og litlu þvottarefni. Þessar buxur eru frábær viðbót við útivistar/hlaupadressið. Stærðarviðmiðun: Heppileg stærð fyrir konu sem er 170 cm og 65 kg er M fyrir göngur en S ef vel þröngt fyrir hlaup. Heppileg stærð fyrir kona sem er 175 cm og 75 kg er L fyrir göngur en M ef vel þröngt fyrir hlaup. Það miðast þá við að vera vel þröngar án þess að vera óþæglegar.

ATH. nýju ullaraðhaldsbuxurnar eru með vösum á hliðinni en að öðru leyti alveg eins, eru hér: https://www.hlaupar.is/shop/domur/buxur1/iomerino-ullaradhaldsbuxur-domu-vasar/

SKU: IOmer_1 Vöruflokkar: , Tags: ,