NORTEC Utanvegabroddar

13.700 kr.

NORTEC eru frábærir hlaupa- og göngubroddar. Sérhannaðir fyrir utanvegahlaup með það í huga að vera með mörgum göddum. Léttir, 122 grömm/hvor. Slitsterkir og haldast vel á sínum stað á skónum. Mjög gott grip, bæði í hálku, snjó, möl og drullu. Þetta eru broddarnir sem við mælum með í utanvegahlaup.

Lítil rennd taska fylgir með.

Helsti munurinn á þessum og öðrum ódýrari broddum er að þessir eru sérhannaðir fyrir hlaup, þ.e. með fleiri göddum þar sem hver gaddi er heldur minni um sig sem gerir þá mun þægilegri að hlaupa á. Einnig er styrking á gúmmí þar sem keðjurnar tengjast því. Henta einnig í göngur.

Prófaðir í aðstæðum við -60°C.

 

SKU: Nordic-Fast_gulur Vöruflokkur: Tags: , , ,
Hlaupár