ULTIMATE DIRECTION Ultra hlaupavesti – 10 lítra – unisex

29.700 kr.

UNISEX

Eftir að hafa prófað fjöldann allan af hlaupavestum komumst við að því að ULTIMATE DIRECTION hlaupavestin stóðu upp úr. Þau fá líka frábæra dóma á síðum sem bera saman slíkan búnað og eru oftast í flokki með þeim allra bestu.

Ultra 6.0 er ný og endurbætt útgáfa, m.a. með símavasa að framanverðu, fyrir aftan annan brúsann, sem auðvelt er að komast í á ferð. Vestið er einstaklega þægilegt í notkun.

Efnið teygist á fjóra vegu sem gerir vestið mjög lipurt. Það eru örlitlir möskvar á efninu sem tryggir góða öndun. Hlaupavestið kemur í fjórum stærðum (S, M, L og XL) og það eru langar ólar sem stækka og minnka vestið svo það er auðvelt að velja rétta stærð.

Auðvelt að komast í vasana á ferð án þess að stoppa. Vestið er 10 L sem þýðir að það tekur auðveldlega jakka, síma, næringu, vökva og annan minniháttar búnað. Það er sambærilegt við Race vestið en 2 L stærra þar sem pokinn aftan á er stærri. Vestið hentar vel fyrir göngur, hlaupaæfingar og keppni.

ATH. vestið er svart á litinn.

 

SKU: 80458322 - Ultra - svart - herra Vöruflokkar: , Tags: , , , ,
Hlaupár