ULTIMATE DIRECTION Race drykkjarvesti -8 lítra – dömu bara til í S

13.000 kr.

DÖMU

Eftir að hafa prófað fjöldann allan af drykkjarvestum komumst við að því að ULTIMATE DIRECTION vestin stóðu upp úr. Þau fá líka frábæra dóma á síðum sem bera saman slíkan búnað og eru oftast í flokki með þeim allra bestu.

Race 5.0 er ný og endurbætt útgáfa, m.a. með símavasa að framanverðu.

Vestið er einstaklega þægilegt í notkun. Efnið teygist á fjóra vegu sem gerir vestið mjög lipurt og afar slitsterkt. Það eru örlitlir möskvar á efninu sem tryggir góða öndun.

Vestið kemur í þremur stærðum (S, M og L) og það eru langar ólar sem stækka og minnka vestið svo það er auðvelt að velja rétta stærð.

Auðvelt að komast í vasana á ferð án þess að stoppa. Vestið er 8 L sem þýðir að það tekur auðveldlega jakka, síma, næringu, vökva og annan minniháttar búnað. Símavasi að framan sem auðvelt er að komast í á ferð.

Vestið hentar vel fyrir göngur, hlaupaæfingar og keppni.

SKU: 80459820 Vöruflokkar: , Tags: , , ,