ULTIMATE DIRECTION Mountain hlaupavesti 5.0 – dömu

31.700 kr.

DÖMU

ATH. hlaupavestið er svart en ekki grænt eins og á sumum myndunum.

Eftir að hafa prófað fjöldann allan af hlaupavestum komumst við að því að ULTIMATE DIRECTION hlaupavestin stóðu upp úr. Þau fá líka frábæra dóma á síðum sem bera saman slíkan búnað og eru oftast í flokki með þeim allra bestu.

Mountain 6.0 er ný og endurbætt útgáfa, m.a. með símavasa að framanverðu sem auðvelt er að komast í á ferð.

Vestið er einstaklega þægilegt í notkun. Efnið teygist á fjóra vegu sem gerir vestið mjög lipurt. Það eru örlitlir möskvar á efninu sem tryggir góða öndun.

Hlaupavestið kemur í þremur stærðum (S, M og L) og það eru langar ólar sem stækka og minnka vestið svo það er auðvelt að velja rétta stærð.

Auðvelt að komast í vasana á ferð án þess að stoppa. Vestið er 13,7 L sem þýðir að það tekur auðveldlega jakka, síma, næringu, vökva og annan minniháttar búnað. Auk þess eru festingar fyrir hlaupa- eða göngustafi.

Vestið hentar vel fyrir göngur, hlaupaæfingar og keppni.

SKU: UL005F001-mountain-dömu Vöruflokkur: Tags: , , ,