ULTIMATE DIRECTION Mountain hlaupavesti – 13 lítra – unisex

31.700 kr.

UNISEX

ATH. vestið er svart en ekki blátt eins og á sumum myndunum.

Eftir að hafa prófað fjöldann allan af drykkjarvestum komumst við að því að ULTIMATE DIRECTION vestin stóðu upp úr. Þau fá líka frábæra dóma á síðum sem bera saman slíkan búnað og eru oftast í flokki með þeim allra bestu.

Mountain 5.0 er ný og endurbætt útgáfa, m.a. með símavasa að framanverðu sem auðvelt er að komast í á ferð. Vestið er einstaklega þægilegt í notkun. Efnið teygist á fjóra vegu sem gerir vestið mjög lipurt. Það eru örlitlir möskvar á efninu sem tryggir góða öndun. Vestið kemur í fjórum stærðum (S, M, L og XL) og það eru langar ólar sem stækka og minnka vestið svo það er auðvelt að velja rétta stærð. Auðvelt að komast í vasana á ferð án þess að stoppa.

Vestið er 13,7 L sem þýðir að það tekur auðveldlega jakka, síma, næringu, vökva og annan minniháttar búnað. Auk þess eru festingar fyrir hlaupa- eða göngustafi. Vestið hentar vel fyrir göngur, hlaupaæfingar og keppni.

SKU: UL006F001-mountain-unisex Vöruflokkur: Tags: , , ,