OTSO Brúsi – 250 ml með breiðum stút

2.900 kr.

Mjúkur 250 ml brúsi með breiðum stút. Þægilegur og tekur lítið pláss þegar búið er að tæma hann.

Bitloki á stút þannig að við það að bíta í stútinn opnast fyrir streymið.

Vottað fyrir matvæli. Best er að handþvo brúsana með vatni eftir hverja notkun.

Brúsarnir koma í þremur stærðum 250, 350 og 500 ml og hver stærð er til með bæði breiðum og mjóum stút. Kosturinn við breiðari stútinn er að það er auðveldara að fylla á hann á hlaupum. Kosturinn við mjórri stútinn er að brúsarnir eru nettari um sig t.d. í drykkjarbelti. Við mælum með 250 ml eða 350 ml með mjóum stút í drykkjarbelti (hægt að hafa einn eða tvo í beltinu) en brúsa með breiðari stút í drykkjarvesti.

SKU: OTSO_brusi_250_stor Vöruflokkar: , , Tags: , , ,