LAFUMA 40 lítra bakpoki – dömu
19.700 kr.
Mjög góður 40 lítra bakpoki á frábæru verði frá LAFUMA. Hentar fyrir 2-3ja daga göngur með tjald/svefnpoka/dýnu. Mikið af vösum og þægilegt aðgengi þar sem það er rennilás neðst að framan þar sem einnig er hægt að komast í aðalhólfið.
Helstu eiginleikar:
- Strappar til að festa tjald eða svefnpoka
- Opnanlegur að neðan/framan með rennilás
- Festingar fyrir göngustafi á hlið
- Teygjanlegt hólf að framan með góðu aðgengi
- Stillanlegar axlaólar
- Stillanlegt mittisbelti með renndum vasa, t.d. fyrir síma
- Þrengingarólar þar sem hægt er að aðlaga pokann að því magni sem er í honum
- Einn opinn hliðarvasi t.d. fyrir brúsa
- Einn renndur hliðarvasi
- Einn renndur vasi á loki
- Hólf fyrir vatnsblöðru (fylgir ekki með)
- Regnyfirbreiðsla fylgir með
- Lyklakrókur
Bakpokinn eru úr 100% endurunnum efnum.
LAFUMA er franskt gæðamerki, stofnað árið 1930 og í eigu sömu aðila og MILLET. Gæðin eru mjög góð en á lágu verði.
LAFUMA er þátttákandi í verkefninu 1% for the planet en 1% af sölu bakpokans fer til umhverfismála.
Til á lager