Vatnsheldni: Vatnsfráhrindandi efni.
Efni: 100% endurvinnanlegt pólýmide í aðalefni og 100% endurvinnanlegt pólýester í öðru efni
Litur: Dökkblár
19.700 kr.
Góð 40 lítra taska (duffle bag) frá MILLET. Tvö rennd hólf að innan og eitt stórt opið. Eitt rennt hólf í loki. Gott aðgengi. Strappar til að þrenga. Stór ól yfir axlir en einnig hægt að breyta í bakpoka. Mun mýkri og léttari en flestir duffle bag og auðvelt að renna þessum.
Þetta er ein af okkar uppáhalds töskum. Við notum hana mikið á ferðalögum, bæði innanlands og utan. Ótrúlega létt en “endalaust” hægt að troða í hana. Mjög þægileg netahólf á hliðum og í loki til að skipuleggja minni hluti. Mjög gott aðgengi þar sem hún rennist í U að ofan. Einnig þægilegur eiginleiki að hægt sé að breyta í bakpoka. Við notum þessa þegar við förum í helgarferðir til útlanda í stað flugfreyjutösku og sleppum þannig við að greiða gjald flugfreyjutaska og erum með þennan á bakinu.
Til á lager