ULTIMATE DIRECTION Carbon stafir
19.020 kr.
25% afsláttur af þessum stöfum.
Frábærir hlaupa- og göngustafir frá ULTIMATE DIRECTION. Þeir eru afar léttir og þar að leiðandi einstaklega góðir á hlaupum. Þeir henta einnig í fjallgöngur og göngur á jafnsléttu. Sambrjótanlegir og auðvelt að taka þá í sundur og setja þá saman sem þú getur auðveldlega gert í miðri æfingu eða keppni, án þess að stoppa. Stafirnir koma í fimm stærðum.
Stærðir:
105 cm hentar fyrir fólk sem er minna er 157 cm á hæð
110 cm hentar fyrir fólk sem er 157-162 cm á hæð
115 cm hentar fyrir fólk sem er 162-171 cm á hæð
120 cm hentar fyrir fólk sem er 171-179 cm á hæð
125 cm hentar fyrir fólk sem er 179-183 cm á hæð
130 cm hentar fyrir fólk sem er 183-188 cm á hæð
135 cm hentar fyrir fólk sem er 188 cm eða hærra
Hlauparar taka frekar stærðina fyrir neðan ef þeir eru á mörkunum en göngufólk stærðina fyrir ofan.
Stafirnir eru aðeins sverari en BLACK DIAMOND CARBON Z en samt sem áður einungis um 15 grömmum þyngri. Að öðru leyti svipuð hönnun.
Snjókarfa fylgir með til að setja neðst á stafina.