LAFUMA Access göngustafir

9.700 kr.

Góðir göngustafir úr áli frá LAFUMA. Auðvelt að stilla hæð með smellum (ekki snúnigs) og hægt að setja þá saman til að festa á bakpoka. LAFUMA er franskt merki, stofnað 1930, sem framleiðir fjölbreyttar vörur á frábæru verði.

Snjókarfa fyrlgir með til að setja neðst á stafi til að nota í snjó. Bæði breið karfa og mjó. Einnig fylgir gúmmí til að setja yfir endann til þess að betra sé að nota stafina á malbiki.

Þetta eru göngustafir sem við mælum með ef þú vilt fá góða stafi á góðu verði og aukahlutum sem fylgja með.

Lengdin er 100-135 cm og hentar því flestöllum.

LAFUMA er þátttakandi í verkefninu 1% for the planet, þar sem 1% af veltu fer til umhverfismála. Stafirnir eru framleiddir í Evrópu.

Til á lager

SKU: LFS6337 9816 bleikir Vöruflokkur: Tags: ,