Julbo Ultimate Jöklagleraugu

22.700 kr.

Dömu og herra

Julbo Ultimate eru einstaklega létt og vönduð sólgleraugu sem eru sérstaklega hönnuð fyrir jöklagöngur enda með nefhlíf og hliðarvörn sem einnig er hægt að taka af og hentar þá fyrir hlaup, hjól og aðra útivist. Þau er hönnuð bæði fyrir dömur og herra og aðlagast bæði mjóum og breiðum andlitum og sitja vel á andlitinu. Breið linsa truflar hvergi sjónsviðið og gefur góða loftun.  Létt og vönduð sólgleraugu. Stillanlegir armar, þ.e. hægt að beyja þá þannig að gleraugun haldist betur á andlitinu.100% UV vörn.

Cat 4 linsa

Gleraugun hafa cat gildið 4 sem þýðir að þau hentar í mikilli birtu enda mjög dökk, t.d. í sól og snjó, eins og t.d. á jöklum.

Þau eru móðuvörn og himnu sem hrindir frá sér vatni. Kjörin gleraugu fyrir erfiðar aðstæður og úthaldsíþróttir.

VLT 5% þýðir að gleraugun hleypa 5% af birtunni í gegn í miklu sólskini.

Þessi týpa, Ultimate, hefur sama notagildi og virkni og Aero, Aerolite og Aerospeed en annað og nýrra útlit. Þessi týpa hefur stillanlega arma umfram hinar týpurnar.

SKU: J5471251 Vöruflokkar: , , Tags: ,