Julbo SPARK sólgleraugu

29.700 kr.

Dömu

Julbo SPARK SP3CF eru einstaklega létt og vönduð sólgleraugu sem eru sérstaklega hönnuð fyrir hlaup, hjól og aðra útivist. Þau er hönnuð fyrir dömur og aðlagast bæði mjóum og breiðum andlitum og sitja vel á andlitinu. Breið linsa truflar hvergi sjónsviðið og gefur góða loftun.  Létt og vönduð sólgleraugu.

Munurinn á þessum og hefðibundnum SPARK gleraugunum er að þessi aðlagast birtuskilyrðum. Dökkna í sól og lýsast í myrkri og því hægt að nota allan ársins hring.

Reactiv Performance 1-3

Gleraugun hafa gildið 1-3 sem þýðir það að glerið aðlagar sig að ólíkum birtuskilyrðum (VLT 17%-72%). Glerið dekkist eftir því sem birtan eykst og gleraugun virka því vel bæði í sólskini og við erfiðar aðstæður á kvöldin eða í rigningu, með móðuvörn og himnu sem hrindir frá sér vatni.

VLT 17% þýðir að gleraugun hleypa 17% af birtunni í gegn í miklu sólskini.

VLT 72% þýðir að gleraugun hleypa 72% af birtunni í gegn í myrkri.

SKU: J5293314 Vöruflokkar: , , Tags: ,