Julbo Rush sólgleraugu

31.700 kr.

Dömu og herra

Julbo RUSH eru sérstaklega hönnuð fyrir hlaup, hjól og aðra útivist. Þau er hönnuð bæði fyrir dömur og herra og aðlagast bæði mjóum og breiðum andlitum og sitja vel á andlitinu. Breið linsa truflar hvergi sjónsviðið og gefur góða loftun.  Létt og vönduð sólgleraugu. Hægt er að stilla spangir sem gerir þau sérstaklega heppileg fyrir hjólreiðar (sitja vel á ferð).

Reactiv Performance 1-3

Gleraugun hafa gildið 1-3 sem þýðir það að glerið aðlagar sig að ólíkum birtuskilyrðum (VLT 17%-72%). Glerið dekkist eftir því sem birtan eykst og gleraugun virka því vel bæði í sólskini og við erfiðar aðstæður á kvöldin eða í rigningu, með móðuvörn og himnu sem hrindir frá sér vatni. Kjörin gleraugu fyrir erfiðar aðstæður og úthaldsíþróttir.

VLT 17% þýðir að gleraugun hleypa 17% af birtunni í gegn í miklu sólskini.

VLT 72% þýðir að gleraugun hleypa 72% af birtunni í gegn í myrkri.

Glerið er nánast glært þegar það er tekið upp úr dimmu hulstrinu en dökknar um leið og birtan leikur um það.

Til á lager

SKU: J5343412 Vöruflokkar: , , Tags: ,