PETZL NAO RL höfuðljós – 1500 lúmen

39.700 kr.

NAO RL er eitt allra öflugasta ljósið á markaðinum. Langur líftími á rafhlöðum og margir valmöguleikar að velja úr.

Þetta er höfuðljós í fjölbreytta útivist eins og göngur, hlaup og hjólreiðar þar sem þörf er á mikilli birtu í langan tíma og að til að sjá langt frá sér.

Rafhlaðan er 3200 mAh og næst langur endingartími með REACTIVE LIGHTING® stillingu. Sú tæknin notar sjálfvirkan ljósnema sem stillir til geislann og ljósmagnið og hámarkar þannig orkunotkunina. Tvær perur eru í ljósinu og hægt að stilla á misbreiða geisla til þess að sjá bæði nálægt og fjær sér. Að auki er rautt ljós aftan á ljósinu sen hægt er að stilla á blikk eða stöðug ljós (öryggisljós).

Ljósið er endurhlaðanlegt um USB tengi og hægt að vera með auka rafhlöðu (keypt sér) eða framlengingarsnúru og geyma þannig rafhlöðuna í vasa eða bakpoka.

Læsing kemur í veg fyrir að það kveikni óvart á ljósinu í vasanum eða töskunni og gaumljós sem sýnir hversu mikið er eftir af rafhlöðunni.

Mjög létt, einungis 145 g!

Þetta er arftakinn af NAO+ 750 lúmena ljósinu og er á sama verði þrátt fyrir tvöfalt ljósmagn.

 

Til á lager

SKU: E105AA00 1500 lúmen Vöruflokkur: Tags: , , ,