Vasar: Vasar allan hringinn
Þyngd: 64 g
Litur: Svartur og blár
7.700 kr.
DÖMU OG HERRA
Frábær geymslustrokkur frá OTSO. Við erum sérstaklega hrifin af svona strokkum og notum þá oftast þegar við förum út að ganga, hlaupa eða hjóla. Það er geymsla allan hringinn og það rúmar auðveldlega 250-500 ml brúsa (250 eða 350 ml eru betri þó svo að 500 ml sé í góðu lagi), hlaupagel, síma og léttan jakka. Mun þægilegra heldur að geyma dót í vösum á jökkum því í strokknum skoppar það ekki.
Auðvelt að komast í næringuna í strokknum á ferð án þess að stoppa.
Festingar fyrir stafi og lyklakrókur.
Strokkurinn hentar vel fyrir göngur, hlaupaæfingar og keppni.
Beltið kemur í sjö stærðum (XXS, XS, S, M, L, XL og XXL).
Stærðir: Best að að beltið liggi ofan á mjöðmunum, þ.e. aðeins fyrir neðan mitti. Mældu ummálið á þessum stað og berðu saman við stærðartöfluna hér að neðan. Mikilvægt er að það sé vel þétt svo hlutir sem eru geymdi skoppi ekki.
XXS – 66 cm
XS – 69 cm
S – 72 cm
M – 75 cm
L – 78 cm
XL – 81 cm
XXL – 84 cm