Öryggi og persónuvernd á vefnum okkar
Þegar þú notar vefinn okkar http://www.hlaupar.is þá verða til upplýsingar um heimsókn þína. Við miðlum þeim upplýsingum aldrei til annara.
Notkun á vafrakökum
Með því að samþykkja skilmála okkar um notkun á vafrakökum (e. cookies) er fyrirtækinu veitt heimild til þess að:
- Gera notendum auðveldara með að ferðast um síðuna, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum
- Bera kennsl á notendur sem hafa heimsótt síðuna áður og persónusníða útlit og leit til samræmis við það
- Þróa og bæta vefinn með því að fá betri innsýn í notkun notenda á vefnum
- Birta notendum auglýsingar
Hlaupár notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.
Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi og símanúmeri í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig skráum við nauðsynlegar fjármálatengdar upplýsingar vegna reiknings. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. Allar persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við ákvæði laga nr. 77/2000 um persónuververnd og meðferð persónuupplýsinga.
Persónulegar upplýsingar sem við söfnum
Ef þú skráir þig á póstlista eða gefur upp netfangið þitt sendum við þér fréttabréf. Ef þú færð nú þegar tölvupósta frá okkur en vilt hætta að fá þá er hægt að senda okkur póst á hlaupar@hlaupar.is
Neðst á öllum markpósti sem við sendum er einnig hnappur „afskrá af póstlista“ sem býður upp á að láta fjarlægja það netfang sem pósturinn var sendur á af póstlistanum.
Að versla við okkur
Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna. Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.
SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.